Það er mjög ánægjulegt að sjá ungu kynslóðina sýna æfingum í vatni áhuga og hvað eldri kynslóðin er að bardúsa. Oft koma krakkar úr menntaskóla með skólaverkefni sem tengjast samfélaginu. Þannig var í rigningunni í gær. Stelpur úr Verzló voru með það verkefni að gera góðverk og skrifa um það stíl. Og það gekk líka svona glimrandi vel.